Hópavinna í íslensku

Ég, Emilía og Lísa Mikaela vorum saman í verkefni í Eglu. Við völdum 3 greindir af þeim sjö sem voru í boði. Við byrjuðum á að gera langskip í þrívídd. Við kíktum í Eglu og fengum upplýsingar um knerri og langskip. Það var rýmisgreind. Svo gerðum við landakort um ferðir Egils erlendis sem var umhverfisgreind. Þar byrjuðum við að fá glæru af Evrópu hjá Auði kennara og teiknuðum á A2 karton, síðan lituðum við löndin með krítum og litum og merktum síðan inná hvert Egill fór. Að lokum gerðum við leikrit með nokkrum öðrum krökkum. Við byrjuðum á að lesa kafla 3 í Eglu og svo skrifuðum við handritið og lékum fyrir hina krakkana. Þetta var bara nokkuð skemmtilegt og fræðandi verkefni.


Það mælti mín móðir

Í vetur bjó ég til myndband úr ljóðinu Það mælti mín móðir eftir víkinginn Egil Skalla-Grímsson. Ég byrjaði að læra ljóðið, svo fór ég á flickr.com og google.is til að finna myndir. Síðan tók ég myndirnar og setti þær inní movie maker og bjó til myndband, síðan fórum við í audacity sem er forrit til að taka upp hljóð (ég hef ALDREI prófað þetta forrit). Svo tók ég hljóðið og setti það í movie maker og bjó til myndband. Hér sjáið þið afraksturinn.


Indiana jones theme song:()


Þetta er gg fyndiðLoL


Myndband

Hvalamyndbandið sem ég valdi þarna með háhyrningunum valdi ég af því að það er mjög skemmtilegt, fræðandi og smá fyndiðLoL en meiri hlutinn af því er soldið ógeðslegt.


!!!klikkaðslega geggjað!!!

Þetta myndband tengist hvalaverkefninu...

Ritgerð um hvali

Í haust gerðum við ritgerð um hvali. Ég fjallaði almennt um hvali og sérstaklega um búrhval því að ég valdi hann til að skrifa um. Ég skrifaði líka um skíðishvali og tannhvali. Ég gerði líka hvalveiðisöguna og sögu um Moby Dick. Smelltu hér til að sjá ritgerðina. Vona að þér/ykkur finnist hún góðGrin

 

NJÓTIÐTounge


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband